Starfsmaður á verkfæralager Icelandair - Reykjavíkurflugvelli

Icelandair · ?

Full time
Contract
Full time
Base
?
Posted

Icelandair er líflegur vinnustaður með starfstöðvar á Íslandi, Evrópu og Norður-Ameríku. Við erum einn stærsti og fjölbreyttasti vinnustaður landsins en starfsumhverfið er bæði alþjóðlegt og síbreytilegt. Við fljúgum til fjölda stórborga í Evrópu, Bandaríkjunum og Kanada, og til áfangastaða innanlands og á Grænlandi.

Viðhaldssvið Icelandair ber ábyrgð á daglegum rekstri og eftirliti með viðhaldi flugvélaflota félagsins. Þar starfar öflugur hópur sérfræðinga sem leggur áherslu á öryggi, áreiðanleika og hágæða vinnubrögð í allri starfsemi.

Við leitum að jákvæðum einstaklingi með ríka þjónustulund við verkfæraafgreiðslu í viðhaldskýli Icelandair á Reykjavíkuflugvelli.

Starfshlutfall er 100% og dagvinna.

Helstu verkefni

  • Afhending á verkfærum
  • Skipulag á verkfæralager
  • Almennt viðhald á verkfæralager
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfnikröfur

  • Framúrskarandi þjónustulund
  • Öguð vinnubrögð og gott skipulag
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Íslensku og ensku kunnátta
  • Góð tölvukunnátta

Stefna Icelandair er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika á meðal starfsfólks og hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.

Umsóknir óskast ásamt ferilskrá eigi síðar en 04.10.2026

Nánari upplýsingar veita

Ásbjörn Halldór Hauksson, Supervisor Shops & Tool, asbjornhal@icelandair.is

From jobs.50skills.com · seen 5 days ago